F R É T T I R
-
HönnunarMars 2021 frammundan
HönnunarMars verður haldinn dagana 19.-23. maí og er spennan farin að magnast. Þrátt fyriri heimsfaraldur, fjöldatakmarkanir og önnur leiðindi verður hægt að fara um, kynna sér og skoða flotta íslenska hönnun víðsvegar um Reykjavík.
Kíkið við á flotta sýningu 30 félagskvenna Grapíku Íslandicu sem verður í Austurhöfn.
Sjáumst á HönnunarMars!
-
Af hverju heilla fjöllin okkur upp úr skónum?
"Viðhorfin til fjalla bera vitni um þróun og stöðuga mótsagnakennd. Þau eru ýmist fögur eða ljót, merkileg eða ómerkileg. Við speglum okkur í fjöllum. Við yfirfærum okkur sjálf á fjöllin. Finnum til smæðar eða mikilleika þegar við stöndum frammi fyrir þeim. Flest dáumst við að fjöllum í öruggri fjarlægð, höfum mynd af fjalli á stofuveggnum og eignum okkur jafnvel fjall sem fylgir okkur allt lífið. Fjall sem hefur breytt okkur og við berum í maganum. Hjá mörgum tilheyrir þetta sama fjall æskustöðvunum eða þorpinu sem þurfti að yfirgefa. Margir ánetjast fjöllum og fá ekki nóg af því að ganga upp á toppinn. Hvað sem því líður þá virðast fjöllin vera uppspretta háleitrar upphafningar og lotningar."
-
Instagramleikur artless
Átt þú artless skipulagsdagatal?
Dregið var í Instagramleik artless í dag.
5 eintök eftir í vefverslun artless.is
-
Skipulagsdagatal artless - The Saga -
2016, þegar ég var í skólanum að læra grafíska hönnun þá ákvað ég að búa til skipulagsdagatal handa systur minni í jólagjöf. Markmiðið var að það YRÐI AÐ VERA SMART og að hægt væri að skrifa inn á dagsetninga-boxin og hafa svo smá aukapláss fyrir minnisatriði, lista eða kveðjur....
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá:
Útskrift úr grafískri hönnun, stofnun hönnunarfyirtækisins DUO. með Kristínu Önnu. Þáttaka á Hönunarmars, Framkvæmdarstjórn Handverkshátíðar í Eyjafirði, vinnuferð til Svíþjóðar, þáttaka í 5 listasýningum, hönnun á diski fyrir Hátíðarkvöldverð í Hörpunni og opnun artless.is vefverslunar...
Að starfa sem sjálfstætt starfandi hönnuður getur oft verið drullu erfitt og það krefst þess að maður reyni stöðugt að stækka þægindarammann sinn. En er það aldrei leiðinlegt!
Komdu fagnandi 2021!
-
artless.is tekur þátt í Singles Day á Heimpopup.is
Eitthvað fyrir þig?
artless tekur þátt í Singles Day 11. nóv á heimapopup. isÍ boði verður 20% afsláttur af plakötum og dagatölum!Tilvalið að nýta sér tilboðin þegar líður að jólum. -
SILKIPRENT - Passaður línurnar
Grafískar konur eða femínísk grafík...Það þarf að passa línurnar í grafík, en þarf kona að passa línurnar? Það má ekki lita út fyrir... er það?
Plakatið bara VARÐ að vera silkiprentað!
-
OPNUNARVIKAN VAR ÆÐI
Nú er fyrsta vika a r t l e s s liðin undir lok og við erum í skýjunum með móttökurnar. Allt hefur verið að ganga vel, við erum enn að læra á allt systemið og skráningarnar og stefnan er að veita alltaf 100% þjónustu.
-
- Fyrri síða
- Síða 2 af 2