SKILMÁLAR & AFHENDING

Upplýsingar um fyrirtækið

Artless  /  kt 570418-2110 / Árskógar 13, 700 Egilsstaðir / +354 867 2357 / artless@artless.is

Artless áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest.

Viðskiptavinur getur fengið vörurnar sendar í pósti eða sótt þær á skrifstofu okkar.

1. Sending

Heimsending fylgir verðlagningngu Íslandspósts. Hægt er að fá vöru senda frítt heim að dyrum á Egilsstöðum og nágreni.  Kjósi viðskiptavinur að sækja vöruna á skrifstofur Artless við Miðvang 5-7, 700 Egilsstaði, gengur það að sjálfsögðu líka.

Pantanir með heimsendingu eru sendar heim að dyrum með Íslandspósti, sé ekki unnt að taka við sendingunni þarf að sækja hana á næsta pósthús.

2. Sækja

Veljir þú að sækja pöntun frekar en að fá hana senda getur afgreiðsla tekið 1-2 virka daga. Þú færð tölvupóst um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar.  

Afhending pantana fer fram á skrifstofum Artless við Miðvang 5-7, 700 Egilsstaði. Pantanir eru afhentar og afgreiddar frá kl 10:00 til 16:00 alla virka daga. 
Smelltu hér til að sjá staðsetningu í Google Maps.

Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um villur. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar.
artless ehf áskilur sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða séu villur í verðum þegar pantað er.

Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Skil geta farið þannig fram að kaupandi skili vöru á skrifstofur Artless við Miðvang 5-7, 700 Egilsstaði, eða sendi okkur vöruna með pósti á eigin kostnað. 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Austurlands.